Rafrænn undirritunarvettvangur sem byggir á ströngustu öryggisstöðlum
Gerðu meira en bara að undirrita rafrænt. Haltu utan um, skrifaðu undir og sýslaðu með skjölin þín með því öryggi sem fylgir viðurkenndum traustþjónustuveitanda (QTSP).
Drifkraftur rafrænna undirritana fyrir fyrirtæki
Rafrænar undirritanir sem eru aðgengilegar öllum, allt frá einstaklingum til alþjóðlegra fyrirtækja.
Allt á einum stað
Frá fyrstu undirritun til langtímavarðveislu, haltu utan um allan líftíma skjalsins.
Alþjóðleg útbreiðsla
Sendu og undirritaðu skjöl á öruggan hátt með samstarfsaðilum út um allan heim.
Fyllsta reglufylgni
Dokobit uppfyllir ströngustu öryggis- og reglufylgnistaðla eIDAS um alla Evrópu.
Sérsníddu þitt eigið vinnuferli skjala
Stilltu nákvæma röð aðgerða og úthlutaðu mismunandi hlutverkum: allt frá því að samþykkja drög og undirrita í réttri röð, yfir í það eitt að skoða fullbúið skjalið.
Hafðu fulla stjórn á skjalasafninu þínu
Flokkaðu skjöl í sameiginlega flokka og stýrðu aðgangi með notendaheimildum. Tryggðu að allt sé öruggt, í samræmi við reglur og auðfundið.
Hafðu miðlæga umsjón með teyminu og reikningsfærslunum
Fáðu fulla yfirsýn með einu stjórnborði. Hafðu umsjón með öllum notendum, stýrðu stillingum og sjáðu um reikningsfærslur til að spara tíma við umsýslu.
Stækkaðu reksturinn með sveigjanlegu fyrirkomulagi
Hannaðu sérsniðna undirritunarupplifun fyrir þína viðskiptavini undir merkjum þíns fyrirtækis. Samhliða vexti geturðu tengt Dokobit við núverandi hugbúnað með API-viðmóti okkar eða tilbúinni Salesforce-samþættingu.
Einfaldur og notendavænn vetvangur
Undirritaðu hvaða skjal sem er með örfáum smellum. Engin uppsetning og enginn aðlögunartími, sem þýðir að þú getur byrjað þegar í stað.
Engar málamiðlanir í öryggismálum
Við tryggjum öllum viðskiptavinum okkar sama öryggi og traust, þar með töldum þeim sem eru með ókeypis aðgang.
Eitt verkflæði fyrir mörg skjöl
Sparaðu tíma með því að hlaða upp og undirrita mörg PDF-skjöl í einu og sama verkflæðinu.
Skilafrestir og áminningar fyrir hvert skjal
Settu skilafrest og láttu kerfið okkar sjá um að senda sjálfvirkar áminningar fyrir þig.
Treyst af leiðandi fyrirtækjum
Rafrænar undirritanir drógu úr pappírsprentun um 63%, sem sparaði alls 60.000 blaðsíður af pappír.
Rafrænar undirritanir auðvelduðu okkur að ná til breiðari hóps og sala jókst um 20%.
Yfir 60% nýrra líftryggingasamninga eru nú undirritaðir rafrænt.
Byrjaðu frítt. Stækkaðu eftir þörfum.
Fyrir þá sem undirrita stöku sinnum
Fríáskrift
- Undirritaðu skjöl til einkanota
- Kynntu þér gáttina áður en þú skuldbindur þig
- Gerðu fullgildar og lagalega bindandi undirritanir
Fyrir teymi
Business
- Aðgangur fyrir marga notendur og teymisstýring
- Miðstýrt eignarhald skjala
- Stillingar fyrir fyrirtækið
- Sérsniðið undirritunarferli með þínu vörumerki










