Skip to main content
API Vefþjónustur

Rafræn innsiglunarþjónusta

Með rafrænum innsiglum í þinni stafrænu þjónustu getur þú innsiglað skjöl til þess að tryggja heilleika og uppruna skjalanna.

Hvers vegna innsiglunarþjónusta?

Tilbúið til notkunar

Innsiglunarþjónusta Dokobit veitir þér allt sem þú þarft fyrir rafræn innsigli: rafræn skilríki frá samstarfsaðilum, HSM búnað til að hýsa þau og fullkomið viðmót eða vefþjónustu til að beita þeim. Engin þörf á að kaua aðskildan hug- eða vélbúnað.

Sameiginleg notkun

Þitt starfsfólk mun á öruggan hátt geta samnýtt innsigli fyrirtækisins í aðstæðum þar sem það hentar betur en að nota persónulega undirskrift starfsmanns.

Engin fjárfesting eða viðhaldskostnaður

Þú þarft ekki að fjárfesta í eigin HSM eða öðrum dýrum búnaði fyrir þitt umhverfi. Við sjáum um það sem þú þarft.

Eiginleikar sem þú færð með Dokobit

  • Heilleiki gagna

    Með því að innsigla skjöl rafrænt með útfærðu eða fullgildu innsigli er tryggt að ekki sé hægt að breyta gögnum eftir að skjöl hafa verið innsigluð.

  • Uppruna gagna

    Skjöl sem innihalda rafrænt innsigli fyrirtækis gefur móttakanda skjals staðfestingu á að skjalið komi án nokkurs vafa frá viðkomandi fyrirtæki eða stofnun.

  • Fullgildir tímastimplar

    Þjónustan fyrir rafræna innsiglun notar fullgilda tímastimpla til að fyrirbyggja að hægt sé að falsa tíma innsiglunar.

  • Tryggt þjónustuframboð

    Dokobit tryggir 99,90% þjónustuframboð.

  • Innsiglun á skjalahóp

    Gerir þér kleift að innsigla mikið magn af skjölum samtímis í staðinn fyrir að innsigla hvert og eitt skjal í einu.

Rafræn innsigli í þinni þjónustu

Ef þú vilt innleiða rafræn innsigli inn í þínar stafrænu þjónustur, kíktu á verðin okkar og hafðu samband.