Skip to main content
API Vefþjónustur

Sterk auðkenning með rafrænum skilríkjum

Veittu betri notendaupplifun með því að leyfa notendum þínum að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum á korti eða skilríkjum í farsíma.

  • Aur logo 2x
  • Spar logo 2x
  • Lotto logo 2x
  • Origo 2x

Hvers vegna sterk auðkenning?

Ekki gefa slaka af öryggi sökum notendaupplifunar

Auðkenningar með notendanöfnum og lykilorðum eru viðkvæmar fyrir öryggisáhættum þar sem hægt er að brjótast inn í gagnagrunna með viðkæmum persónuupplýsingum. Jafnvel þó að það verði ekki brotist inn í þitt kerfi þá eiga notendur til að nota sömu lykilorðin fyrir marga aðganga sem þýðir að þú þarft að gera viðbótar öryggisráðstafanir sem fylgir kostnaður og krefst þróunaraðila sem eru sérfræðingar í öryggismálum. Með því að nota rafræn skilríki lágmarkar þú áhættu á netglæpum og svikum og veitir örugga og samræmda notendaupplifun í öllum þínum þjónustum.

Fjölgaðu viðskiptavinum

Hlífðu notendum þínum frá ítarlegum spurningalistum. Fjölgaðu í staðinn heimsóknum viðskiptavina, nýskráningum eða viðskiptum á vefnum þínum og í appinu með sveigjanlegu og einföldu auðkenningarferli án lykilorða. 30% af viðskiptum í vefverslunum verða aldrei að kaupum vegna þess að neytendurnir geta ekki munað lykilorðið sitt. Auk þess leiða stífar kröfur um sterk og flókin lykilorð til þess að margir aðilar hætta við að stofna reikninga hjá nýjum aðilum.

Þekktu viðskiptavini þína

Fækkaðu netsvikum og fölsunum í kerfinu þínu – með því að byggja á rafrænum skilríkjum frá traustum útgefanda getur þú treyst því hverjir þínir viðskiptavinir eru í raun og veru. Fjármálaþjónustuveitendur geta notað lausnirnar okkar til að skrá nýja aðila í viðskipti með fullgildum rafrænum undirskriftum eða öðrum viðurkenndum skilríkjum í samræmi við eIDAS reglugerðina eins og er krafa í lögum.

Íhugaðu kostnaðinn þinn

Einbeittu þér að því sem skiptir máli fyrir fyrirtækið þitt. Við getum sparað þér fjölda klukkustunda við að byggja upp nauðsynlega sérfræðiþekkingu og fullbúna lausn sem virkar. Yfir 80% af viðskiptavinum okkar innleiða API vefþjónusturnar okkar á innan við viku.

Studd rafræn skilríki

Dokobit styður fjölda rafrænna skilríkja í Evrópu

Studd lönd
Dokobit styður að rafræn skilríki frá Íslandi, Danmörk, Finnlandi, Litháen, Lettlandi, Eistlandi, Póllandi og Belgíu.

Studdar lausnir
Með Dokobit er hægt að auðkenna notendur með eftirfarandi lausnum: opinberum nafnskírteinum, snjallkortum, USB tókum, skilríkjum á farsímum, Smart-ID, eParaksts mobile, MitID, eistnesk e-Residency kort.

Veldu þá leið sem hentar

Notaðu tilbúið viðmót eða smíðaðu sjálfur þitt eigið til að starfsmenn, samstarfsaðilar og viðskiptavinir geti auðkennt sig í kerfinu þínu.

Identity Gateway

Ekki byggja allt frá grunni. Notaðu tilbúið viðmót frá okkur sem er bæði einfalt að innleiða og fyrir notendur að auðkenna sig með.

Identity API

Stjórnaðu sjálfur upplifun notenda og viðmótum í þínum kerfum – eftir allt, þú veist sjálfur best hvað þú þarft.

Ekki viss um hvaða leið er best?

Sjá nánari samanburð.

  • Innfelld auðkenning

    Samræmd upplifun notenda við auðkenningu með því að stinga lausninni beint inn á vefinn þinn eða app.

    Studd skilríki

    Veldu hvaða skilríki þú vilt að þínir viðskiptavinir geti notað til að auðkenna sig í þínu kerfi með einum smelli. Engin þörf á að innleiða sérstaklega hverja tegund af skilríkjum.

    Tungumál

    Breyttu viðmóti Dokobit í eftirfarandi tungumál: Íslensku, Dönsku, Eistnesku, Ensku, Finnsku, Litháensku, Lettnesku, Norsku, Rússnesku eða Sænsku. Fleiri tungumál eru á leiðinni fljótlega.

    Merkt upplifun og viðmót

    Þú getur auðveldlega stillt hvernig þú vilt að Gateway líti út með því að nota CSS og Javascript.

  • Innfelld auðkenning

    Meiri sveigjanleiki til að hanna notendaupplifun við auðkenningu.

    Studd skilríki

    Fyrir hverja tegund af skilríkjum sem þú vilt styðja í þínu kerfi þarf að innleiða sérstaklega. Kortaskilríki og farsímaskilríki.

    Tungumál

    Hvert tungumál sem þú vilt styðja í þínu kerfi þarf að setja upp og þýða sérstaklega.

    Merkt upplifun og viðmót

    Búðu til þitt eigið notendaviðmót með því að setja allt upp sjálfur.

Auðkenning með rafrænum skilríkjum í þínum þjónustum

Ef þú vilt bæta við rafrænni auðkenningu í þínum stafrænu þjónustum, kíktu á verðskránna og hafðu samband.