Aðgengisstefna Dokobit
Hjá Dokobit leggjum við áherslu á að tryggja að vefurinn okkar sé aðgengilegur öllum notendum, þar með töldum fólki með fötlun. Við vinnum stöðugt að því að bæta upplifun allra viðskiptavina okkar og leggjum okkur fram við að fylgja aðgengisstöðlum sem tryggja að aðgangur að þjónustu okkar sé eins hnökralaus og kostur er.
Ráðstafanir til að tryggja aðgengi
Dokobit grípur til eftirfarandi ráðstafana til að tryggja aðgengi að vefsíðu og gátt (e. Portal) Dokobit:
- Innri reglur og ferlar til að mæta kröfum um aðgengi.
- Sjálfsmat á kerfum sem snúa að viðskiptavinum ársfjórðungslega.
- Formlegar gæðatryggingar í aðgengismálum: Fengnir eru utanaðkomandi úttektaraðilar árlega til að greina mögulega vankanta.
Staða samræmis
Leiðbeiningar um aðgengi að vefefni (WCAG) skilgreina kröfur til hönnuða og forritara til að bæta aðgengi fyrir fólk með fötlun. Staðallinn skilgreinir þrjú samræmisstig: Stig A, Stig AA og Stig AAA. Dokobit uppfyllir WCAG 2.1 á stigi AA að hluta, og unnið er markvisst að því að uppfylla staðalinn að fullu. Að uppfylla skilyrðin að hluta þýðir að einstaka hlutar vefefnisins samræmast kröfunum ekki að fullu að svo stöddu.
Ábendingar
Við fögnum ábendingum þínum um aðgengi Dokobit. Vinsamlegast láttu okkur vita ef þú verður var við aðgengishindranir á vef Dokobit:
- Netfang: support@dokobit.com
Leitast er við að svara ábendingum innan tveggja virkra daga.
Samhæfi við vafra og hjálpartækni
Dokobit tryggir samhæfi við eftirfarandi vafra:
- Google Chrome
- Microsoft Edge
- Safari
- Mozilla Firefox
Dokobit er ekki samhæft:
- Microsoft Explorer
Dokobit er hannað til að vera samhæft eftirfarandi hjálpartækni:
- Skjálesurum (e. Screen reading technologies)
Tækniupplýsingar
Aðgengi Dokobit byggir á eftirfarandi tækni til að tryggja samvirkni við þá vafra, hjálpartækni eða viðbætur sem notaðar eru í tölvunni þinni:
- HTML
- WAI-ARIA
- CSS
- JavaScript
Þessi tækni er undirstaða þess að kröfur um aðgengi séu uppfylltar samkvæmt þeim stöðlum sem fylgt er.
Takmarkanir og úrræði
Þrátt fyrir okkar ítrustu viðleitni til að tryggja aðgengi að Dokobit geta komið upp ákveðnar takmarkanir. Hér að neðan er lýsing á þekktum takmörkunum. Vinsamlegast hafðu samband ef þú verður var við vankanta sem ekki eru taldir upp hér.
Þekktar takmarkanir hjá Dokobit:
- Virkni frá þriðja aðila: Þjónustu frá þriðja aðila er stýrt af samstarfsaðilum okkar og því getum við ekki ábyrgst fullt aðgengi að efni í þeirra eigu, til dæmis stillingum fyrir vafrakökur.
- Annað: Auk ofangreindra takmarkana geta aðrir vankantar komið upp í einstaka hlutum þjónustunnar. Teymi Dokobit vinnur markvisst að því að fjarlægja þessar takmarkanir.
Mat á aðgengi
Dokobit mat aðgengi þjónustunnar með eftirfarandi hætti:
- Sjálfsmat
Yfirlýsing þessi var búin til þann 16. nóvember 2023 með með hjálpartóli W3C (Accessibility Statement Generator Tool).
Síðast uppfært: 5. nóvember 2024.
Eins og er er yfirlýsingin aðeins aðgengileg á ensku, en við vinnum að því að hafa hana aðgengilega á fleiri tungumálum.