Gerðu þínar þjónustur öflugri með Dokobit
Við hönnum þjónustur sem eru auðveldar fyrir hugbúnaðarfólk að innleiða og viðhalda, sem starfsmenn geta auðveldlega notað og veita ytri notendum bestu mögulegu upplifun.
Hundruðir fyrirtækja í Evrópu velja að verða skilvirkari með lausnum Dokobit.
Við umbreytum flókinni tækni yfir í einfaldar og aðgengilegar þjónustur sem auðvelt er að nota.
-
Breytingar gerðar auðveldar
Síbreytilegt umhverfi rafrænna undirskrifta með nýjum reglugerðum kallar oft á að tæknin fylgi hratt á eftir. Með Dokobit þarft þú ekki að hafa áhyggjur af því. Láttu okkur sjá um það!
-
Einfaldar lausnir að innleiða
API vefþjónusturnar okkar eru hannaðar þannig að þitt teymi sérfræðinga eða samstarfsaðili geti innleitt vefþjónusturnar inn í þitt upplýsingakerfi á einfaldan hátt.
-
Enginn stofnkostnaður
Með því að velja okkar API vefþjónustur þarf ekki neinn stofnkostnað í HSM búnaði eða öðrum dýrum vélbúnaði. Það kostar ekkert að byrja strax að þróa á móti okkar þjónustum.
Við erum með allt sem til þarf
-
Öflun undirskrifta
API-vefþjónusta til að afla undirskrifta frá þriðja aðila rafrænt.
Nánar um söfnun undirskrifta -
Undirritun
API-lausnir til að undirrita, varðveita, tímastimpla og sannreyna skjöl.
Nánar um undirritun -
Auðkenning
Vefþjónusta til að auðkenna notendur með rafrænum skilríkjum í farsímum, á kortum sem og með rafrænum búsetukortum.
Nánar um auðkenningu -
Innsiglun
Vefþjónusta til að innsigla skjöl rafrænt með innsigli fyrirtækis eða stofnunar til að tryggja uppruna og heilleika gagna.
Nánar um innsiglun
Rafræn þjónusta milli landa
Dokobit styður fjölda rafrænna skilríkja innan Evrópu. Með okkar lausnum er einfalt að tengjast notendum og bjóða þína þjónustu innan fjölda Evrópuríkja og víðar.
-
Dokobit styður til viðbótar við skilríki á Íslandi; norsk, dönsk, sænsk, finnsk, pólsk, litháísk, lettnesk, eistnesk, belgísk, spænsk og hollensk skilríki. Einnig bjóða undirskriftarþjónustur Dokobit upp á möguleikan að fá undirritun frá öðrum ríkjum með SignicatID og Swisscom VideoID lausnum.
-
Í Dokobit getur þú undirritað skjöl með skilríkjum á farsíma, Auðkennisappinu, eParakst mobile, BankID, FTN, itsme, MitID, iDIN, Swisscom, SignicatID og Eistneskum e-recidency skilríkjum. Fleiri lausnir bætast reglulega við. Lesa meira.
Innleiðingaraðilar
Þessir innleiðingaraðilar hafa reynslu og þekkingu á öllum lausnum Dokobit og geta veitt aðstoð við þróunar- og innleiðingarvinnu.
Heildstæðar auðkennislausnir sem fylgja viðskiptavininum alla leið
Með Signicat náum við yfir alla vegferð viðskiptavinarins með auðkennisprófun, trauststýringu, auðkenningu og rafrænum undirritunarlausnum.
Uppfyllum hæstu öryggiskröfur
Hjá Dokobit tökum við öryggi gagna og því að fylgja nauðsynlegum reglugerðum mjög alvarlega. Við höfum frá upphafi þróað Dokobit til að mæta öllum hæstu kröfum um öryggi.
Uppfyllum hæstu öryggiskröfur
Hjá Dokobit tökum við öryggi gagna og því að fylgja nauðsynlegum reglugerðum mjög alvarlega. Við höfum frá upphafi þróað Dokobit til að mæta öllum hæstu kröfum um öryggi.