Skip to main content
API Vefþjónustur

Rafrænar undirskriftir í þinni lausn

Með okkar vefþjónustunum getur þú látið þína notendur undirrita rafrænt á þínum vef í staðinn fyrir að beina þeim til Dokobit.

  • CAPBOX 2x 1
  • Islandsbanki 2x
  • Telia 2x

Hvers vegna rafrænar undirskriftir?

Skipta út úreltum aðferðum

Pappírsdrifin ferli og handundirskriftir á 21 öldinni eru ekki aðeins úreld heldur einnig þyngri í samanburði við rafrænar undirskriftir. Ekki láta þær halda aftur af þér. Rafrænar undirskriftir einfalda ferlið fyrir þig á marga vegu, spara tíma og koma í veg fyrir falsanir.

Sparaðu tíma allra þátttakenda

Með rafrænum undirskriftum munt þú bæta upplifun þjónustu fyrir starfsfólk, viðskiptavini, samstarfsaðila og þig sjálfan: ekki lengur þörf á að mæta eitthvert einungis til að undirrita skjöl og ekki lengur stæður af pappír á borðinu þínu.

Eiginleikar sem þú færð með Dokobit

  • Ýmis skjalasnið studd

    Dokobit styður mörg útbreidd skjalasnið eins og PDF, ASiC-E, BDoc, EDoc og ADoc.

  • Fullgildir tímastimplar

    Dokobit notar fullgilda tímastimpla í öllum rafrænum undirskriftum á skjölum til að verjast fölsun á tíma undirritunar.

  • Langtímavarðveisla á skjölum

    Dokobit býður upp á að varðveita skjöl til langtíma til að ábyrgjast ótímabundið gildi fullgildra rafrænna undirskrifta eða á fullgildum rafrænum innsiglum.

  • Styðjum rafræn innsigli

    Dokobit styður notkun á útfærðum og fullgildum rafrænum innsiglum. Rafræn innsigli tryggja uppruna og heilleika skjala.

  • Sannreyna undirrituð skjöl

    Staðfestingarþjónustan gerir þér kleift að sannreyna rafrænt undirrituð skjöl til þess að kanna hvort undirskriftir séu í lagi, uppfylli kröfur laga, hvort rafrænu skilríkin hafi verið í lagi, hvort skjölin séu heil og margt fleira.

Studd rafræn skilríki

Dokobit styður fjölda rafrænna skilríkja í Evrópu

Studd lönd

Dokobit styður að fullu rafræn skilríki frá Íslandi, Finnlandi, Litháen, Lettlandi, Eistlandi, Póllandi og Belgíu.

Studd form af skilríkjum

Með Dokobit getur þú undirritað skjöl rafrænt með eftirfarandi: skilríkjum á farsímum, skilríkjum á kortu, Smart-ID, eParaksts mobile, opinberum nafnskírteinum, eistneskum e-Residency kortum og USB tókum.

Veldu þá leið sem hentar

Notaðu tilbúið viðmót frá okkur eða hannaðu alveg þitt eigið til að gera starfsmönnum, viðskiptavinum og samstarfsaðilum kleift að undirrita skjöl rafrænt.

Documents Gateway

Ekki byggja allt frá grunni. Notaðu tilbúið viðmót frá okkur sem er bæði einfalt fyrir þig að innleiða og notendurna þína að undirrita með.

Documents API

Stjórnaðu upplifun notenda og viðmótum í þínum kerfum alveg sjálfur – eftir allt veist þú sjáfur best hvað þú þarft.

Ekki viss um hvaða leið er best?

  • Notendaupplifun

    Fáðu tilbúið notendaviðmót fyrir undirritun skjala sem inniheldur:

    Viðmót sem hægt er að stinga inn á vef (e. embeddable). Það leyfir þér að stinga okkar viðmóti inn í ykkur sem iFrame eða modal glugga.

    Sýnishorn af skjali. Gerir þér kleift að birta notendum PDF skjöl í þinni þjónustu áður en þau eru undirrituð sem og opna og skoða skjöl sem hafa verið undirrituð.

    Upplýsingar um undirskriftir. Með því getur þú sýnt allar upplýsingar sem rafræna undirskriftin og skilríkin innihalda: tíma undirritunar, tilgang, skilríkjahafa, útgefanda, gildistíma, o.fl.

    Hópundirritun. Gerir þér kleift að undirrita mörg skjöl samtímis með einum PIN innslætti.

    Raðundirritun. Gerir þér kleift að bæta við nokkrum skjölum í röð í eitt undirskriftarferli. Þetta er hagnýtt þegar sami undirritandinn þarf samtímis að undirrita nokkur aðskilin skjöl.

    Stýra þátttakendum. Það gerir þér kleift að skipta út undirritendum á hvaða stigi undirskriftarferlis sem er. Það er sérstaklega gagnlegt þegar einhver er í fríi eða vinnur ekki lengur hjá fyrirtækinu.

    Studd tungumál. Hægt er að stilla tungumál viðmótsins á eitthvað af studdum tungumálum: Íslensku, Ensku, Litháensku, Lettnesku, Eistnesku eða Rússnesku.

    Sérsniðið útlit á viðmóti. Með því að nota eigin CSS stíl er hægt að aðlaga Gateway viðmótið til að aðlagast útliti viðskiptavina. Einnig er gagnvirkt aðgengi að viðmótinu með JavaScript.

    Fáðu meiri sveigjanleika til að sérsníða þjónustuna fyrir þínar þarfir við undirritun skjala og þróa aðeins þá hluta sem þarf.

    Skjalavistun

    Skjöl eru vistuð í kerfi Dokobit á meðan undirritun stendur yfir en aldrei lengur en í 30 daga. Um leið og búið er að undirrita skjal getur þú sótt það og vistað í þínu eigin kerfi og eytt því frá Dokobit. Ef þú eyðir því ekki sjálfur er skjalinu sjálfvirkt eytt eftir 30 daga hvort sem það hefur verið undirritað eða ekki.

  • Notendaupplifun

    Fáðu meiri sveigjanleika til að sérsníða þjónustuna fyrir þínar þarfir við undirritun skjala og þróa aðeins þá hluta sem þarf.

    Skjalavistun

    Aðeins er unnið á skjölum í Dokobit þegar undirritun er framkvæmd, allt að 300 sekúndur. Um leið og skjalið hefur verið undirritið er því skilað til baka í þitt kerfi.

Rafrænar undirskriftir í þinni stafrænu þjónustu

Ef þú vilt innleiða rafrænar undirskriftir í þínar stafrænu þjónustur, kíktu á verðin okkar og hafðu samband.