Skip to main content

Snjallari vinnubrögð spara tíma og kostnað

Dokobit býður upp á snjallari og þægilegri leið til að klára verkefnin hraðar. Rafrænar undirritanir eru bara byrjunin á öllum þeim möguleikum sem kerfið býður upp á.

Hvernig virkar lausnin?

Dokobit gerir þér kleift að undirrita skjöl og safna undirritunum frá öðrum á örfáum mínútum. Lausnin er svo einföld að hún hentar öllum.

Réttaráhrif rafrænna undirskrifta

Rafrænar undirskriftir eru ekki bara myndir á skjölum. Allar undirritanir í Dokobit byggja á rafrænum skilríkjum sem uppfylla ströngustu öryggiskröfur og standast ítrustu skilyrði eIDAS-reglugerðar ESB nr. 910/2014.

  • Jafngilda handskrifuðum undirskriftum

    Dokobit styður fullgildar rafrænar undirskriftir sem eru lagalega jafngildar handrituðum undirskriftum.

  • Heilleiki skjala tryggður

    Með því að undirrita skjöl með Dokobit má verjast því að innihaldi sé breytt eða þau fölsuð aftur í tíma.

  • Lagalegt gildi

    Undirritanir með Dokobit eru lagalega bindandi og gilda í öllum ríkjum ESB og á öllu Evrópska efnahagssvæðinu (EES).

Lausnir

Allt sem þú þarft fyrir snjallari vinnubrögð

  • Fjölbreytt úrval skjalasniða

    Undirritaðu skjöl á því formi sem þú vilt – allt frá PDF skjölum og ASiC-E skjalavösum yfir í staðbundnari skjalasnið (BDoc, EDoc og ADoc).

  • Styðjum fjölda rafrænna skilríkja

    Undirritaðu skjöl með þeim rafrænu skilríkjum sem þér henta best, á korti, farsíma eða á öðru formi. Sjá öll studd skilríki.

  • Sannprófun undirskrifta

    Athugaðu hvort undirritanir annarra aðila séu gildar og lagalega bindandi.

  • Tengiliðir og flokkar

    Vistaðu tengiliði í tengiliðaskrá til að finna þá auðveldlega næst þegar þú þarft að deila skjali.

  • Viðmót á mörgum tungumálum

    Notaðu Dokobit á íslensku, ensku, spænsku, hollensku, litháísku, lettnesku, eistnesku, norsku, sænsku, finnsku, dönsku, frönsku eða þýsku. Fleiri tungumál bætast við fljótlega.

  • Leitarvirkni og síun

    Síaðu skjöl eftir skjalaflokkum og notaðu leitina til að finna hratt það sem þú ert að leita að.

  • Athugasemdir

    Skrifaðu athugasemdir til annarra notenda sem tengjast viðeigandi skjali.

  • Hópaðgerðir

    Undirritaðu, eyddu eða sæktu mörg valin skjöl samtímis með einum smelli.

  • Örugg miðlun skjala

    Tryggðu með rafrænum skilríkjum að einungis réttir viðtakendur geti opnað skjöl.

  • Sjálfvirkar tilkynningar

    Fáðu tilkynningu þegar þú þarft að undirrita eða þegar aðrir aðilar hafa undirritað skjalið.

  • Aðgerðaskrá

    Fáðu fulla yfirsýn yfir allar aðgerðir sem notendur framkvæma með ítarlegri aðgerðaskrá.

Dokobit fyrir teymi

Vantar þig fleiri lausnir til að drífa áfram stafræna vegferð hjá þínu teymi? Þá er Dokobit rétta lausnin fyrir þig.

Snjallsíma appið

Dokobit hvar og hvenær sem er.

Með Dokobit-appinu færðu alla frábæru eiginleika gáttarinnar á ferðinni, auk þess sem þú færð tilkynningar samstundis um allt er varðar skjölin þín, beint í símann.