Skip to main content

Velkomin um borð, rafrænu íbúar!

Dokobit gerir þér kleift að reka fyrirtækið þitt án pappírs og undirrita bindandi skjöl á öruggan hátt hvar sem er í Evrópu. Þetta tekur aðeins örfáa smelli, óháð því hvar þú ert staddur í heiminum.

Eistland er fyrsta ríkið til að bjóða upp á rafræna búsetu (e-Residency) – fjölþjóðleg stafræn auðkenni sem standa öllum til boða, hvar sem er í heiminum. Rafræn búseta veitir aðgang að öruggri og þægilegri stafrænni þjónustu sem eykur trúverðugleika og traust í rafrænum samskiptum. Rafrænir íbúar fá afhent snjallkort (smart ID card) sem gerir þeim kleift að undirrita skjöl, sannvotta upplýsingar, dulrita gögn og auðkenna sig með öruggum hætti.

Allt sem þú þarft til að verða pappírslaus

Dokobit eflir reksturinn þinn með því að gera undirritun skjala hraðari og þægilegri fyrir þig og þína viðskiptavini.

  • Fljótlegt

    Sparaðu tíma með því að undirrita og senda skjöl rafrænt, ásamt því að safna undirskriftum frá samstarfsaðilum þínum um allan heim.

  • Þægilegt

    Undirritaðu skjöl hvar sem er og úr hvaða tæki sem er. Það eina sem þú þarft er nettenging og snjalltæki til að halda utan um skjölin þín á ferðinni.

  • Skilvirkt

    Lækkaðu rekstrarkostnað á borð við prentun og póstsendingar, og auktu skilvirkni í vinnuferlum með hraðari undirritun skjala.

  • Uppfyllir kröfur

    Rafrænar undirritanir sem Dokobit styður jafngilda eiginhandarundirskriftum í samræmi við reglugerð ESB um rafræna auðkenningu og traustþjónustu (eIDAS).

Vottað og fyllilega tryggt

Þjónusta okkar og starfsemi eru í samræmi við og vottuð samkvæmt ISO/IEC 27001 staðlinum. Enn fremur höfum við vátryggt ábyrgð okkar vegna starfsábyrgðar, persónuverndarbrota og netárása fyrir allt að 1 milljón evra.

Dokobit API fyrir rafræna búsetu

Einfaldaðu rafræna þjónustu við rafræna íbúa með því að samþætta auðkenningu, sannvottun og undirritun skjala beint í þinn hugbúnað eða sjálfsafgreiðslugáttir.