Skip to main content
Reglufylgni og öryggi

Skilmálar um viðeigandi notkun

Eftirfarandi skilmálar um viðeigandi notkun gilda frá og voru síðast uppfærðir:

  • fyrir notendur Dokobit-þjónustugáttarinnar þann 28.05.2023,
  • fyrir notendur Dokobit API þann 18.06.2023.

Notkun þjónustunnar er háð þessum skilmálum um viðeigandi notkun. Þú samþykkir að misnota ekki þjónustuna og aðstoða ekki aðra við slíkt á þann hátt sem lýst er hér á eftir. Jafnframt gerir þú þér grein fyrir þeirri ábyrgð sem hlýst af brotum á skilmálum þessum. Vinsamlegast athugið að hugtök sem rituð eru með stórum upphafsstaf hafa þá merkingu sem þeim er gefin í þjónustuskilmálum okkar.

Misnotkun á þjónustunni getur meðal annars falist í:

1. Truflun á þjónustu

1.1. Að skerða eða stofna í hættu heilleika, trúnað og/eða tiltækileika þjónustu okkar og/eða kerfa, þar með talið þjónustu og kerfa undirvinnsluaðila okkar sem tengjast afhendingu þjónustunnar. Þetta nær yfir að kanna, skanna eða prófa veikleika hvers kyns kerfa eða neta sem hýsa þjónustuna.

1.2. Að eiga við hugbúnað okkar, beita bakþróun (e. reverse-engineering), sniðganga öryggis- eða auðkenningarráðstafanir, eða reyna að öðlast óheimilan aðgang að þjónustunni, tengdum kerfum, netum eða gögnum.

1.3. Að ofgera eða reyna að ofgera innviðum okkar með því að leggja óhóflegt eða óeðlilegt álag á kerfi okkar.

1.4. Að ráða í eða afkóða gagnasendingar til eða frá netþjónum sem keyra þjónustuna.

2. Misnotkun á þjónustunni

2.1. Að senda breyttar, villandi eða rangar upplýsingar um uppruna, þar með talið hvers kyns auðkennisfalsanir (e. spoofing) eða vefveiðar (e. phishing).

2.2. Að rægja eða gera lítið úr okkur eða samstarfsaðilum okkar, birgjum eða tengdum aðilum.

2.3. Að kynna eða auglýsa aðrar vörur eða þjónustu en þína eigin án tilskilinnar heimildar.

2.4. Að nota þjónustuna til að brjóta gegn friðhelgi annarra, þar á meðal að birta eða deila einka- eða trúnaðarupplýsingum annarra án skýrs leyfis þeirra, eða að safna saman persónuupplýsingum annarra.

2.5. Að senda auðkenningar- og/eða undirritunarbeiðnir til margra handahófskenndra viðtakenda sem hvorki eiga von á beiðninni né hafa haft samráð við sendanda þess efnis.

2.6. Einungis má nota þjónustuna til að geyma viðskiptavinagögn sem notandinn hefur aflað eða útbúið með lögmætum hætti. Óheimilt er að nota þjónustuna, beint eða óbeint, til hvers kyns ólögmætrar starfsemi.

2.7. Óheimilt er að nota þjónustuna til að bjóða eigin lausnir fyrir rafræn auðkenni sem byggja á auðkenningu notenda eða undirritun í gegnum Dokobit API-þjónustu. Sem dæmi: Viðskiptavinur skráir sig inn með einhverjum af þeim rafrænu skilríkjum sem við styðjum og í sömu lotu er hann beðinn um að skrá sig sem notanda með eigin lykilorði sem hann notar svo við síðari auðkenningar.

2.8. Einungis má nota Dokobit API-þjónustu í kerfum notanda eftir að Dokobit hefur lokið farsælli samþættingarúttekt (e. integration review). Óheimilt er að endurnýta veittan API-aðgang, beint eða óbeint, í kerfum þriðja aðila sem ekki voru hluti af upphaflegri samþættingarúttekt. Ef nota á þjónustuna í kerfum þriðja aðila skal gera nýjan samning og veita nýjan aðgang fyrir hverja notkun.

2.9. Að tryggja ekki það öryggisstig sem Net- og upplýsingaöryggisstofnun Evrópu (ENISA) mælir með í þeim kerfum sem samþættast þjónustu okkar (leiðbeiningar ENISA um reiknirit, lyklastærðir og breytur).

2.10. Að fá aðgang að eða leita í hlutum þjónustunnar með öðrum hætti en í gegnum opinber studd viðmót okkar (t.d. með sjálfvirku vefskriði eða „scraping“).

3. Óviðeigandi efni

3.1. Að birta, hlaða upp, deila, senda eða á annan hátt veita aðgang að efni sem:

3.1.1. Brýtur gegn hugverkarétti eða öðrum réttindum þjónustuveitanda eða þriðja aðila, þar á meðal gegn hvers kyns höfundarrétti, vörumerkjum, einkaleyfum, viðskiptaleyndarmálum, sæmdarrétti, friðhelgi einkalífs, persónurétti eða öðrum hugverka-, eigna- eða samningsbundnum réttindum;

3.1.2. Er klámfengið, inniheldur hrottalegt ofbeldi eða hryðjuverkastarfsemi, þar á meðal áróður fyrir hryðjuverkum, eða er á annan hátt ólögmætt;

3.1.3. Hvetur til fordóma eða haturs gagnvart einstaklingum eða hópum vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernisuppruna, kyns, kynvitundar, kynhneigðar, fötlunar eða skertrar getu;

3.1.4. Hvetur til ólöglegrar eða skaðabótaskyldrar háttsemi;

3.1.5. Inniheldur tölvuvírusa, bota, orma, skriftaveikleika eða annað svipað spilliefni;

3.1.6. Þú hefur ekki rétt til að senda inn;

3.1.7. Gæti á annan hátt valdið þjónustuveitanda eða þriðja aðila skaða.

4. Brot á skilmálum um viðeigandi notkun

4.1. Brot af þinni hálfu, fyrirtækis þíns eða hvers kyns annars aðila sem hefur heimild til aðgangs og notkunar á þjónustunni, geta leitt til þess að lokað verði á aðgang eða þjónustunni hætt að hluta eða öllu leyti. Einnig er heimilt að grípa til annarra viðeigandi ráðstafana til að bregðast við brotinu, samkvæmt okkar eigin mati.

4.2. Við áskiljum okkur rétt til að grípa til aðgerða án fyrirvara þegar nauðsyn krefur til að tryggja stöðugan, öruggan og truflunarlausan rekstur þjónustunnar, samkvæmt okkar eigin mati.

4.3. Við getum kallað til og munum eiga samstarf við lögreglu- og stjórnvöld ef grunur leikur á refsiverðri háttsemi. Þeir sem gerast brotlegir gætu einnig borið einkaréttarlega eða refsiverða ábyrgð samkvæmt gildandi lögum.

4.4. Komi til brota á þessum skilmálum um viðeigandi notkun, skal viðskiptavinurinn ekki eiga rétt á neinum bótum.

Útgáfur

Gildir frá 18. júní 2023 Sækja

Eldri útgáfur

01.01.2022-17.06.2023

28.06.2019-31.12.2021