Sniðmát fyrir eyðublöð eru nú í boði fyrir alla notendur í áskrift!
Sniðmát fyrir eyðublöð eru frábær leið til að einfalda daglegan rekstur. Allir notendur í áskrift geta nú búið til útfyllanleg eyðublöð, vistað þau sem drög, deilt sniðmátum innan síns fyrirtækis og loks deilt hlekk með öðrum aðilum til að fylla út og undirrita.
Sniðmát fyrir eyðublöð eru frábær leið til að einfalda daglegan rekstur. Allir notendur í áskrift geta nú búið til útfyllanleg eyðublöð, vistað þau sem drög, deilt sniðmátum innan síns fyrirtækis og loks deilt hlekk með öðrum aðilum til að fylla út og undirrita. Þetta eru aðeins nokkur einföld skref:
- Þú hleður upp pdf skjali
- Þú dregur inn og bætir við tómum reitum í skjalið (t.d. textareitum, gátreitum, fjölvalsspurningum og fleira)
- Að lokum deiliru skjalinu innan fyrirtækisins eða með öðrum aðilum með því að senda hlekk.
Notendur geta vistað sniðmát og deilt þeim með teyminu sínu svo samstarfsfólk geti unnið með þau síðar. Hægt er að fylla út og undirrita samnýtt eyðublað oftar en einu sinni, og í hvert sinn sem það er gert vistast undirritað skjal sjálfkrafa á Dokobit-aðganginn þinn. Ef eyðublað er ekki tilbúið til birtingar er hægt að vista það sem drög.
Verð fyrir undirskriftir á samnýttum eyðublöðum er það sama og fyrir hefðbundin skjöl.
Viltu vita hvernig á að byrja? Veldu þá þjónustuleið sem hentar þínum þörfum best og smelltu á Sniðmát eyðublaða (Form templates) í vinstri stikunni á forsíðu gáttarinnar.