Skip to main content

Kynntu þér nýja og endurbætta viðmótið okkar til þess að hlaða upp skjölum!

Febrúar 2025

Ef þú hefur skráð þig inn í gáttina nýlega og reynt að hlaða upp nýju skjali, þá hefur þú mögulega tekið eftir spennandi breytingum á viðmótinu okkar.

Þótt nýja hönnunin sé falleg á að líta, þá er það virknin sem er raunverulegi drifkrafturinn á bak við þessar uppfærslur. Við höfum bætt ferlið við hlaða upp skjölum til að gera það hraðvirkara og einfaldara í notkun, svo það sé enn auðveldara fyrir þig að bæta við þátttakendum og breyta boðunarleiðum.

Og loksins, eiginleikinn sem allir hafa beðið eftir… (trommuslátt, takk) nú geturðu valið tungumál fyrir hvern þátttakanda fyrir sig! 

Já, þú last rétt! Nú geturðu valið tungumál tilkynninga fyrir hvern þátttakanda. Ef einn viðskiptavinur þinn er til dæmis eistneskur og annar norskur, geturðu valið viðeigandi tungumál fyrir hvorn um sig. Þeir munu þá fá boð á eistnesku og norsku, á meðan þú heldur áfram að nota gáttina á því tungumáli sem þú kýst. Þessi eiginleiki hefur verið lengi í bígerð og við teljum að hann hafi klárlega verið biðarinnar virði!

Val á tungumáli tilkynninga í þátttakandahluta.

Auk þess hefur þú nú val um hvernig þátttakendur eru upplýstir um undirritunarbeiðnina, með tölvupósti eða SMS-skilaboðum*. Þótt SMS sé kannski ekki vinsæll kostur í sumum löndum, þá er það helsta samskiptaleiðin í öðrum. Nú getur þú valið hvernig hver og einn þátttakandi er upplýstur, hvort sem það er miðað við þeirra óskir eða þínar, sem gerir þér kleift að safna undirskriftum hraðar og á skilvirkari hátt.

Við vonum að þessar nýjungar nýtist þér vel og geri vinnuna þægilegri. Takk fyrir að velja Dokobit!

*Þessi eiginleiki er í boði fyrir Business- og Enterprise notendur.

Kynnum stýringu undirritunarleiða

Júlí 2024

Umsjón með undirritunarleiðum getur verið flókið verkefni, sérstaklega þegar unnið er með aðilum frá mörgum löndum. Með það í huga kynnum við ítarlegan valglugga fyrir stýringu undirritunarleiða þar sem þú getur valið ákveðið undirritunarstig og leið, auk þess að tilgreina hvort þú leyfir undirritun í gegnum myndsímtal.

Stýring undirritunarleiða

Þessi uppfærsla mun einfalda lífið fyrir bæði skjalaeigendur og stjórnendur fyrirtækisaðganga, nú verður hægt að ákveða hvort leyfilegt sé að breyta undirritunarstillingum fyrir hvert skjal fyrir sig. Hér eru dæmi um hvernig þetta virkar:

  • Fyrirtæki XYZ: Kerfisstjóri leyfir eingöngu undirritanir á hæsta öryggisstigi (QES) og notar staðbundnar undirritunarleiðir til að forðast aukakostnað. Hann gefur ekki svigrúm til að breyta þessum stillingum fyrir hvert skjal fyrir sig.
  • Fyrirtæki ABC: Kerfisstjóri safnar fullkomnum og fullgildum undirskriftum (QES og AdES) og leyfir myndbandsundirritun. Með því að haka við „leyfa breytingar“, fær hver skjalaeigandi frelsi til að ákveða hvaða tegundir undirskrifta eru leyfðar í hvert sinn.

Ef þú ert stjórnandi aðgangs skaltu skilgreina þær undirritunar leiðir sem þú kýst í Stillingum, undir Default options. Þú getur svo breytt stillingunum þegar þú hleður upp eða breytir hverju skjali fyrir sig.

Þótt þú sért ekki hluti af teymi, þá gæti þessi nýjung samt nýst þér. Þú munt sjá nýja valgluggann þegar þú hleður upp eða breytir skjölum, sem gerir þér kleift að velja þær undirritunar leiðir sem þú kýst fyrir hvert skjal fyrir sig.

Síðan fyrir notkunartölfræði hefur fengið endurbætt útlit!

Júní 2024

Nú er enn auðveldara fyrir stjórnendur að fylgjast með mikilvægri notkunartölfræði.
Ný hönnun tölfræðisíðunnar miðast við að auðvelda leit að lykilupplýsingum.

Nú eru fleiri reitir til að velja dagsetningar og notendur á auðveldan hátt – ásamt sundurliðun
á undirskriftum með rafrænu skilríkjum og auðkenningum eftir öryggisstigum. Þessar endurbætur gefa skýrari sýn á yfirvofandi reikningum án þess að þörf sé á því að flytja út Excel-skjöl.

Það er sífellt algengara að fyrirtæki nota rafræn innsigli og þar af leiðandi fylgir sjálfvirk talning rafrænna innsigla með – þannig það er auðvelt að rekja notkun teymisins. Ert þú ekki með rafrænt innsigli? Skoðaðu hvernig önnur fyrirtæki nota rafræn innsigli og pantaðu þitt eigið hér.

Nú getur þú hlaðið upp mörgum PDF skjölum samtímis

Apríl 2024

Ef þú ert vanur að hlaða upp eða undirrita mörg skjöl í einu mun þessi virkni breyta því hvernig þú nálgast skjala meðhöndlun!

Hingað til, ef þú varst að vinna með með margar skrár, þurftir þú að hlaða þeim upp eina í einu sem þýddi endurtekin verkferli fyrir sendanda skjalsins og fjölda tölvupóstboða fyrir undirritanda. Ekki lengur!

Virkni fyrir að hlaða upp mörgum PDF-skjölum samtímis.

Nú getur þú hlaðið upp mörgum PDF skjölum í einu skrefi, valið þínar stillingar, bætt við þátttakendum og deilt skjölunum. Á meðan mun viðtakandinn ekki fá truflanir í formi tölvupósta, í staðinn mun hann fá eitt boð og skrifa undir skjölin í einföldu ferli.

Undirritunarferlið mun krefjast þess að öll skjöl séu skoðuð fyrst og síðan undirrituð eitt í einu, án þess að endurtaka yfirferðina eða opnunarskref skjala. Með öðrum orðum, þegar þeir hafa undirritað skjal mun kerfið sjálfkrafa hlaða undirritunarglugga fyrir það næsta. Það verður að undirrita öll skjöl í þeirri lotu til að ljúka ferlinu og sjá stöðuna „Undirritaður“.

Hvað ef ég er ekki ánægður með eitt af skjölunum?

Þú verður að fara yfir öll skjölin fyrst. Ef þú ert ekki ánægður með eitt þeirra skaltu ekki að hefja undirritunarferlið. Þú neitar í staðinn að skrifa undir og lætur eiganda skjalsins vita hverju þarf að breyta. Þú ættir aðeins að byrja að undirrita ef þú ert ánægður með öll skjölin í lotunni.

Hver getur notað þennan eiginleika?

Þessi eiginleiki er hluti af gjaldskyldum áætlunum sem þýðir að allir með Fagfólk, Fyrirtæki eða Stærri fyrirtæki reikninga geta notað hann. Þetta er góð viðbót við eiginleikana sem fást með áætlunum: undirritaðu með samstarfsaðilum frá öðrum löndum, leyfðu notendum að undirrita án Dokobit reiknings, notaðu fresti, áminningar og fleira! Smelltu hér til að sjá ítarlegan samanburð á áætlunum.

Hver er munurinn á þessu og lotuundirritun?

Þessi eiginleiki er í boði fyrir alla notendur í áskrift og virkar með öllum undirskriftaraðferðum sem þú notar venjulega. Lotuundirritun er aftur á móti sérstakt ferli sem virkar aðeins með sumum snjallkortum, auðkenniskortum og USB-táknum. Ef þú hefur ekki heyrt um slíkar aðferðir til að undirrita, eru líkur á því að það sé miklu einfaldara fyrir þig að nota venjulega undirritunaraðferð. Ertu ekki viss um hvaða aðferðir á eru studdar á þínum markaði? Smelltu hér til að komast að því.

Við fjarlægjum landamæri við undirritun með Dokobit appinu

Nóvember 2023

Dokobit appið hefur fengið umtalsverðar uppfærslur, sem skilar sér í hraðari og þægilegri undirritun. Þetta er það sem þú finnur í uppfærðu útgáfunni:

  • Bætt notendaviðmót fyrir skjalaskoðun – forskoðaðu skjalið og hafðu allar upplýsingar um þátttakendur á þægilegan hátt settar upp á eigin flipa.
  • Sýnileiki verkferli – þegar þú ert með ákveðið verkferli getur þú fylgst með framvindunni án þess að skrá þig inn á Dokobit Portal.
  • Undirritun með SMS OTP er ný undirskriftaraðferð, sem áður var aðeins aðgengileg í Dokobit Portal. Njóttu notendavænnar undirritunarupplifunar fyrir skjöl með minni ábyrgðaráhættu
  • Dokobit appið styður nú öll EES lönd!

Hefur þú ekki enn prófað Dokobit appið? Þú ert að missa af frábærum eiginleikum eins og skönnun og undirritun skjala, rauntímatilkynningar um stöðu skjala og margt fleira! Skannaðu QR kóðan til að hlaða því niður eða finndu það í Apple App Store eða Google Play Store.

QR kóði til að sækja Dokobit appið